Ég rek mitt eigið fyrirtæki þar sem ég framleiði nokkrarhollar og góðar vörur : Pestó , Döðlumauk og Sætbitann Dásemd . Fleiri vörur er í farvatninu.
Ég hef haldið fjölda námskeiða undir nafninu Ævintýri Bragðlaukana þar sem ég elda góðan og hollan mat og kenni þátttendum um leið allt um að lifa heilbrigðum og góðum
lífsstíl.
Ég hef yfir 20 ára reynslu af því að kenna líkamsrækt og er í dag einka og hóptímaþjálfari. Ég hef mikið passion fyrir almennu heilbrigði og matarvenjum fólks. – Anna Marta Ásgeirsdóttir, eigandi ANNA MARTA
Vörurnar frá Önnu Mörtu eru fáanlegar í eftirtöldum verslunum: Hagkaup, Fiskikóngurinn, Hafið, Melabúðin, Gott og Blessað, Fiskkompaní Akureyri.