Grunnur í gæðastjórnun við matvælaframleiðslu

Námskeiðið er haldið á Eldstæðinu og tekur 2,5 klst og tekur á eftirfarandi þáttum er varðar gæðastjórnun við matvælaframleiðslu:

  • Gæðahandbókin og uppsetning hennar
  • Góðir starfshættir
  • Þjálfun starfsfólks
  • Hreinlæti og forvarnir
  • Meðhöndlun og geymsla matvæla
  • Hættugreining og sýnataka
  • Vörumerkingar
  • Næringargildi og innihaldslýsingar
  • Ofnæmis- og óþolsvaldar

Innifalið eru meðal annars eftirfarandi námsgögn, þ.e.a.s. grunnur eða sýnishorn sem hægt er að vinna með:

  • Grunnur að gæðahandbók sem miðast við framleiðslu í Eldstæðinu
  • Móttöku-, framleiðslu- og söluskýrslum
  • Þjálfunareyðublöð
  • Frávikaskýrsla
  • Innköllun – sýnidæmi
  • Hitastigseftirlit
  • Skynmat
  • Yfirlit yfir eftirlitsstaði
  • Tékklisti fyrir vörumerkingar
  • Umgengnireglur (partur af starfsmannaþjálfun)

Leiðbeinandi námskeiðsins er: Eva Michelsen, Msc í stjórnun og stefnumótun og stofnandi Eldstæðisins

Dagsetning: Námskeið eru alla jafna haldin 1x í mánuði eftirfarandi mánuði: Janúar-apríl og ágúst-október.
Síðasta námskeið fór fram 19.október 2026 milli 16:00 – 18:30